Friday, February 03, 2006
Ég er hætt....

JÆja gott fólk, ég hef ákveðið að nenna þessu ekki lengur og er því hætt að blogga bili!! Þannig að amma mín þú verður bara að fara að hringja í mig til að fá fréttir af mérSmile

Takk fyrir og hafið það sem allra best.....

Kv. Arna Kristín


Posted at 02:33 am by arnakr
Comments (5)  




Tuesday, January 31, 2006
ÍSLAND....

Jáhhh ekki slæmt að vera Íslendingur í dag.  Frábær leikur hjá Íslandi í dag eins og eflaust allir vita.  Lögðum Rússana sem var bara hrein og tær snilld.  Mér finnst fátt skemmtilegra en að horfa á Ísland spila í handbolta og það svona vel.  FRÁBÆRT!!! Yndislegt að sjá hann Óla spila svona vel, var farin að örvænta að hann væri bara búinn kallinn en nei, hann hefur sýnt það núna á þessu móti að hann er enn bestur.  Varð líka ofboðslega hrifin af honum Alesander, finnst hann algjör snillingur í vörninni og ótrúlega gaman að fylgjast með honum þar.  Guðjón Valur ekkert nema fallegur og góður og fleira og fleira.  Svei mér þá, er í skýjunum.

Þá að öðru, helgin var alveg ljómandi góð.  Kíkti út á djammið á föstudeginum.  Það var bara hörkustuð. Augljóslega búið að líða allt of langur tími síðan ég dansaði síðast og var ég því vel upplögð fyrir dansgólfið á Hressó á föstudagskvöldið.  Ljómandi góður félagsskapur líka, Stefán og Valdís stóðu sko alveg fyrir sínu og ekki má gleyma Björt sem gerði mig svona líka fína fyrir herlegheitin.  Takk yndin mín!

Fór reyndar bara ágætlega snemma heim þar sem ég ætlaði að fara að leika mömmu um hádegi á laugardeginum.  Fékk reyndar ekki að sofa alveg eins lengi og ég vildi þar sem ég var trufluð af værum svefni, en allt er það nú fyrirgefið enda ég með mitt fína jafnaðargeð.  Svo einkenndist restin af helginni af stanslausu fjöru hjá mér og litlu rúsínunum mínum.  Er ekki frá því að ég verði hin efnilegasta móðir.  Skelltum við okkur í sund þarna á laugardagseftirmiðdeginum með Davíð sem var rosa fínt. Fínasta laug nýja laugin í Sölunum í Kópavoginum. 

Já morguninn í dag var reyndar frekar erfiður.  Byrjaði á því að vakna allt allt of þreytt, fór til læknis og ákvað svo að fara í ræktina með Björt. Var alls ekki tilbúin fyrir það sökum þreytu og ákvað ég fljótlega að fara bara í búð og svo heim í sturtu.  Við Björt semsagt ætluðum að fara í Bónus og vorum komnar fyrir framan dyrnar í Bónus og þá var auðvitað lokað þar sem klukkan var ekki orðin 12.  Jæja, allt í lagi, við löbbum aftur að bílnum og þegar ég ætla að opna hurðina þá fattaði ég það að ég var ekki með bíllyklana.  Jújú mín var bara svo þreytt og ekki með á nótunum að ég gleymdi lyklunum í svissinum á bílnum og bílinn læstur auðvitað.  Mín fyrstu viðbrögð voru þau að grenja úr hlátri.... þvílíkt og annað eins.  Jæja en við redduðum þessu og hlutum við ekki mikinn skaða af þessu ævintýri nema kannski Björt greyið sem þurfti að standa úti á bolnum í smá tímaSmile

Jæja, þarf að læra allt allt of mikið þannig að ég bið að heilsa í bili.

Kv. Arna Kristín


Posted at 08:27 am by arnakr
Hvað hefurðu að segja...  




Thursday, January 26, 2006
Fimmtudagur og helgin framundan

Nokkrir ánægjulegir punktar í tilefni dagsins í dag

  • Teitið í gær var ljómandi gott, nóg af kökum allavegannaSmile
  • Eyja mín lét sjá sig og það var svo gaman að fá hana í heimsókn
  • Við fórum í bíó á myndina Brokeback Mountain
  • Hún var vægast sagt einstaklega óspennandi
  • Reyndar vel þess virði að sjá tvo karlmenn í ástaratriðum og það oft
  • úúúúúúúúú
  • Tók síðan rúnt til að skutla liðinu heim, tók ekki nema tæplega klukkutíma, takk fyrir kærlega
  • Eyja ákvað að taka veskið mitt með sér upp að Rauðavatni svo að hún gæti hirt allt klinkið mitt þegar hún tróð veskinu í pósthólfið mitt
  • Notaði það sem afsökun að annars hefði það ekki komist í hólfið, pufff
  • Á von á rosalegu skemmtilegum einstaklingum um helgina í næturgistinguSmile
  • Elska áfangana sem ég er í í skólanum og gerir það skólann ekkert nema skemmtilegan og áhugaverðan
  • Það er bjórkvöld á Pravda á morgun, spurning um að mæta
  • Og að lokum þá elska ég hann bróður minn

Jæja þá er ég farin að horfa á handboltann, ÁFRAM ÍSLAND!

 


Posted at 08:18 am by arnakr
Comments (2)  




Tuesday, January 24, 2006
Karlmenn og aftur karlmenn

Var að enda við það að rökræða svona líka skemmtilega við hann bróður minn.  Ég var að kaupa handa honum skrifborðstól í rúmfatalagernum og allt í góðu með það.  Nema hvað að þeir bakkabræður, Davíð og Friðjón, gátu ekki sett stólinn saman.  Ég asnaðist til að fara á Grettis og verða vitni að þessum atburði.  Þá segir Davíð bróðir minn við mig að ég eigi að fara með stólinn í vöruafgreiðsluna og segja manninum að ég geti ekki sett hann saman og biðja hann um að gera það.  Humm, ég auðvitað sagði Davíð að hann gæti bara drullast til að gera það sjálfur.  Neiiiiiiiiii guð forði því að hann og Friðjón fari með stólinn og viðurkenni það að þeir geti ekki sett hann saman.  Ég þverneitaði fyrir það að fara og sagði að þeir gætu bara farið sjálfir með helvítis stólinn og beðið kallinn um að setja hann saman.  Rökin sem hann bróðir minn kær kemur þá með eru sú að kallinn í vöruafgreiðslunni myndi bara hjálpa mér að setja hann saman þar sem ég sé kvenmaður en Davíð karlmaður.  Studdi hann mál sitt með því að þegar ég sótti stólinn í vöruafgreiðsluna þá bar þessi indælis maður stólinn út í bíl fyrir mig og myndi því setja hann saman fyrir mig líka.  Tek það fram að Davíð sendi mig inn til að ná í stólinn og sat sjálfur á rassinum út í bíl.  Honum sárnaði eitthvað við þessa góðmennsku hjá manninum þar sem hann hefur ekki fengið svona þjónustu áður.

Já, tilgangurinn með þessari sögu.  Skiptir það svona miklu máli að vera kvenmaður og karlmaður í heiminum í dag? Jú, kannski.  Reyndar ekki við okkur kvenfólkið að sakast að karlmenn hlaupa til og vilja bera þunga hluti fyrir okkur en ekki einstaklinga af sama kyni.  Er þetta ekki bara einhver sýning sem karlar setja upp svo oft á tíðum til að sýna að þeir eru jú æðra kynið og sjái um að bera þungu hlutina meðan konan á að vera heima með börnin?  Kannski er þetta bara svona vel steypt inn í okkar menningu og þetta sé kannski bara eitthvað sem þeim beri að gera, þ.e.a.s. að halda á þungu hlutunum fyrir okkur!  Og annað gott dæmi um það að karlar þurfa að vera æðra kynið sem getur allt og gera allt betur er það að Davíð og Friðjón gátu ekki hugsað sér að fara í vöruafgreiðsluna og viðurkenna að þeir gátu ekki sett stólinn saman, tveir fullorðnir karlmenn.  Hahahahaha heldur ætluðu að senda mig, konuna, sem er svo hjálparþurfi að hún þurfi karlmann til að bjarga sér.  Puffff, kom ekki til greina að ég léti undan svona karlrembu.  Ekki gott að reyna þetta við feministann mig.

Jamm, pistill dagsins í dag.

Þá að öðru, á morgun verður haldið síðbúið afmælisboð í tilefni af afmælinu mínu sem var þann 6. janúar. Var víst búin að lofa smá boði og hef ákveðið að halda það á morgun þar sem óvæntur gestur hefur ákveðið að mæta á svæðið.  Allir guð velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.  Jahh sem er reyndar ekki mikiðSmile.  Þannig að Hrefna, Valdís, Björt, Dagný, Erla og fleiri látið sjá ykkur.  Endilega ef þú lest þetta Vaka, láttu þá sjá þig líka á Eggertsgötu 24, íbúð 219. 

Fínt að mæta uppúr kvöldmat bara og gerum eitthvað skemmtilegtSmile 

Segjum þetta þá gott af blaðri í dag....

Arna Kristín, sem lætur bróður sinn ekki valtra svo glatt yfir sig.


Posted at 10:20 am by arnakr
Comments (4)  




Wednesday, January 18, 2006
Vikan hálfnuð

Ég er búin að sjá það að það er ekkert vandamál að eignast barn þó að maður sé í háskólanámi.  Nei nei maður bara mætir með krakkann í tíma.  Já svei mér þá, var í kynjafræði áðan og þar mætti bara ein með fimm mánaða gamlan son sinn í tíma.  Verð að segja að það var frekar truflandi þó að krakkinn hafi nú reyndar haldið kjafti framan af.  Þannig að ætli ég fari ekki bara að hrúga niður börnum við fyrsta tækifæri.  Kannski einn stór hængur á gjöf Njarðar, jú, maður þarf víst að hafa einhvern álitlegan karlmann til að eiga barnið með.  Humm, er reyndar ekkert svo erfitt að redda því en málið bara að finna einhvern sem er nokkurnveginn heill á geði, vill vera heimavinnandi með krakkana meðan ég vinn og heldur ekki framhjá.  úfffff held að þetta sé lost caseTongue Nei nei er annars alveg róleg, lífið er fínt eins og það er þessa stundina.  Þó að ég hafi reyndar farið að grenja nokkrum sinnum í Kringlunni í gær þar sem við Valdís vorum stöðugt minntar á Bóndadaginn sem er á föstudaginn.  Hahahahahahahahahaha... Dagný reyndar búin að bjóðast til að lána mér Egil þar sem hún verður ekki heima.  Kannski maður taki hana á orðinu, var nú einu sinni hérna í gamla daga soldið heit fyrir Agli litlaWink jæja, hætt þessu bulli og yfir í annað....

Er annars mjög sátt við stefnu mína í lífinu.  Get ekki sagt annað en það að námið mitt er orðið einstaklega athyglisvert og skemmtilegt og bíð ég bara spennt eftir því sem koma skal.  Birkir með mér í þremur áföngum af fjórum sem ég er í, ekki slæmt að hafa hann þarna.  Held að við eigum eftir að hafa gaman þessa önnina.  Er í Inngangi að kynjafræði sem er svona framhalda af kenningunum og held ég að sá áfangi eigi eftir að verða mjög fræðandi og skemmtilegur. 

Svaf reyndar einstaklega illa í nótt, ekki nóg með það að mig var að dreyma einhvern fjandann heldur vældi svoleiðis í glugganum hjá mér að ég var að verða sturluð á sálinni.  Reyndi mitt besta að hunsa þetta hljóð, en nei, það tókst ekki.  Var því búin að draga sængina upp fyrir haus og klemma hana við eyrun til að blokka þetta leiðinlega hljóð.  Tókst ekki svo vel þannig að ég lá og hlustaði á leiðinlegasta hljóð í heimi í alla nótt.

Hvað skal svo segja meira skemmtilegt í dag veit ég ekki.  Búin í skólanum, stefni á ræktina og svo heim í langa langa sturtu.  ELSKA það að fara í sturtu í svona hálftíma eða svo og bera svo á mig Victoria Secret bodylotionið mitt.  Algjör unaður.

Lífið er gott ídag.....

Kv. Arna ánægða


Posted at 04:19 am by arnakr
Comments (3)  




Monday, January 16, 2006
....

Það eru svona dagar sem minna mig svo vel á af hverju ég vil frekar búa á Spáni heldur en Íslandi.......

Posted at 06:00 am by arnakr
Comments (3)  




Saturday, January 14, 2006
Borg óttans...

Þá er ég komin í borg óttans eftir langa en einstaklega skemmtilega dvöl fyrir austan.  Kom með síðustu vél í gær og skellti mér í partý á Grettis og kom Stefáni mínum á óvart.  Það var ekkert lítið sem drengurinn var ánægður að sjá migSmile.

Á Grettis voru svona nokkurnvegin allir, ekkert nema gaman að því.  Sumir nýklipptir og sætir og aðrir búnir að drekka kannski aðeins of mikiðSmile.  Ég var alveg róleg, ekki í miklum djammham þannig að ég kíkti aðeins með liðinu á Hverfis og fór svo bara heim í háttinn.  Reyndar átti ég í smá vandræðum á leiðinni heim.  Lagði bílnum mínum þarna hjá Grettis og svo þegar ég ætlaði að fara heim þá sat ég föst.  Lítill sem enginn snjór samt en kagginn minn bara spólaði og spólaði.  En þar sem ég er nú að austan og kann að keyra í svona aðstæðum, eitthvað annað en gúbbíarnir hérna fyrir sunnan, þá var mín bara alveg róleg og notaði þolinmæði og gáfur til að losa mig úr stæðinu og hélt heim á leið.

Annars er yndislegt að vera komin í borgina, finnst eins og ég sé komin heim.  Búin að taka upp úr töskunum og ganga frá draslinu mínu þar sem það á að vera.  Ljómandi gott allt og ég glöð og ánægð í dag, komin heimSmile

Jæja segjum þetta gott í dag, ætla að leggjast upp í sófa og hafa það huggulegt.

AKS


Posted at 07:40 am by arnakr
Comments (3)  




Friday, January 13, 2006
Föstudagur og helgin framundan

Jæja þá er ég mætt í vinnuna aftur.  Búin að losa mig við gömlu hjónin, þau fóru á skíði til Ítalíu með hann Antoníus frænda minn.  Dauðfegin  að losna við ömmu og vera bara ein heimaSmile nei nei ég lýg því nú.  Svo gott að vera hjá henni elsku ömmu minni.  Rólegur dagur hjá mér í gær, vaknaði snemma og skellti mér í klukkutíma bað svona mér til ánægju og skemmtunar.  Nýta það þegar maður er einn heima og með baðkar.  Svo var ég bara að leika við elsku frænkur mínar, sem auðvitað elska mig meira en allt annaðSmile

Humm humm humm svo styttist óðum í mig, ætli ég láti ekki sjá mig í borg óttans um helgina einhverntíman.  Byrja svo í skólanum í næstu viku. 

Jæja ég hef ekkert að segja....

Hlakka til að sjá ykkur öllWink

Kv. Arna


Posted at 06:34 am by arnakr
Comments (1)  




Tuesday, January 10, 2006
Þriðjudagur í dag...

Jæja þá er kominn þriðjudagur.  Ég að vinna, en ekki hvað! Flugfélag Íslands Arna hljómar af vörum mínum oft á dag.

Hef ákkúrat ekkert að segja.  Afmælisdagurinn minn var alveg ljómandi góður, skrapp aðeins á Seyðis og við Eyja bökuðum köku sem var hin besta drullukaka og borðuðum við hana með bestu lyst.  Annars þá hef ég farið alveg fáránlega lítið á Seyðisfjörð, kannski farið fimm sinnum þangað á þessum mánuði sem ég er að verða búin að vera hérna.  Enda eyði ég dágóðum tíma í vinnunni og hef gert þessi jólin.

Svo styttist í það að ég komi suður.... ætla að vinna svolítið meira og svo fer ég í borg óttans.....

Bið þá bara að heilsa....

Kv. frá Flugvellinum á Egilsstöðum

AKS


Posted at 01:50 am by arnakr
Comments (1)  




Friday, January 06, 2006
21. árs í dag og hananú

Jæja, halló halló.  Ákvað að blogga bara í tilefni þess að ég á afmæli í dag.  Orðin aldeilis bara 21. árs, núna fyrst fara tölurnar að hrannast upp og áður en maður veit af er maður orðin þrítug.  Þýðir ekkert að grenja það.

Váá vill þakka öllum sem eru búin að vera að senda mér sms í morgun og óska mér til hamingju, fallegt af ykkur að muna eftir mér svona snemma á morgnana.  Svo hringdi Stebbi hertz í morgun og hélt sko aldeilis að hann væri að vekja mig, en nei nei mín sko löngu vöknuð enda enginn friður fyrir símanum þrátt fyrir að hann var á silent.  Issss er alls ekki að kvarta, var búin að sofa alveg nógWink

Annars þá er ég búin að vera að vinna og vinna og meiri vinna.  Var að vinna í gær frá hálf 6 um morguninn og til rúmlega 9.  Enda hlakka ég til að sjá launaseðilinn í lok janúar.  Þá verður farið á útsölur.  Já, þrátt fyrir alla þessa vinnu og að það sé nú yndislegt að vera hérna hjá henni ömmu og hele familyen þá er mig alveg farið að langa suður.  Það styttist...

Áramótaballið heima var algjör snilld.  Fannst reyndar kóngulóarbandið frekar leiðinlegt band og féll það alveg í skuggann hjá þeim Björt, Hrefnu og fleirum.  Þau voru alveg frábær og eiga stórt hrós skilið.  Æði pæði.  Svo var bara dansað og dansað meira......

Núna er svo bara 2006 gengið í garð og kannski ég taki svona smá punkta um það sem gerðist 2005, svona til gamans:

  • Árið byrjaði á því að ég og Bjarni fluttum suður á Þórsgötuna þar sem hann var búinn að skrifa undir hjá ÍBV og ég ákvað að skella mér í Háskólann í uppeldis- og menntunarfræði.  Ákvað að prófa eitthvað annað áður en ég myndi reyna við læknisfræðina.  Við höfðum það bara ljómandi gott í borginni, ég byrjaði að vinna með skólanum hjá Ítr sem frístundaleiðbeinandi og fattaði þá að mig langar bara að vinna með börnum í framtíðinni og ekkert læknavesenSmile
  • Í lok vetrar ákvað ég svo að fara austur til að vinna á flugvellinum í staðinn fyrir það að fara til Eyja með Bjarna, ekki slæm ákvörðun þar svosem.  Skrapp fyrst til Bjartar til Danmerkur í heimsókn sem var æði.
  • Svo kom ég heim og vann á flugvellinum um sumarið.  Þetta líka frábæra, ógeðslega skemmtilega sumar.  Get ekki sagt annað en að það hafi verið vel viðburðarríkt og fullt af skemmtilegum hlutum.  Ég og Bjarni hættum saman og kynntist ég skemmtilegu fólki eins og Kristjáni Sveinssyni, MIkka merkilega og svo síðar um sumarið honum Kjartani.  Eyja átti eflaust móment sumarsins þegar hún gerði góða tilraun til að rota Kjartan á hans fyrsta austfirska balli þetta sumariðSmile Kjartan greyið hefur ekki þorað að taka almennileg dansspor síðan.  Hahahaha.
  • Alberto kom til Íslands í heimsókn og það var ótrúlega gaman loksins að sýna honum hvar ég bý og allt mitt fólk.  Held að hann stefni á aðra ferð þetta árið.
  • Sumarið semsagt samanstóð af mínum vinum, skemmtilegu fólki og frábærri skemmtun og djammi út í gegn.  Stóð alveg upp úr þegar hugsað er um liðið ár.
  • Svo um haustið flutti ég aftur suður, að þessu sinni ein í mína íbúð á Stúdentagörðunum.  Ljómandi gott að búa þar og líður mér mjög vel þar.
  • Björt ákvað að snúa aftur heim á klakann mér til ómældrar gleði og ánægju og get ég varla án hennar verið núna.  Bjó hún hjá mér fyrsta mánuðinn eða svo.
  • Haustið og veturinn fram að jólum einkenndist svo af lærdómi, skóla og endalaust miklu djammi með frábæru fólki eins og Hrefnu Bóel, Stefáni mínu kæra, Valdísi, Björt, Lísu Maren, Dagnýju og fleira góðu fólki. 
  • Svo komu jólin................... og árið kláraðist

Já svona var árið mitt í grófum dráttum.  Núna er svo komið nýtt ár og ekki spurning að það verður dúndrandi skemmtilegt.  Og þegar ég kem suður þá verður sko tekið gott djamm, lofa því að halda smá afmælisteiti fyrir ykkur vini mína, ekki spurning fyrst þið eruð flest búin að yfirgefa mig í borgina.

Þá segjum við þetta gott í bili.... ætla að fara í sturtu og klæða mig og skreppa svo á Seyðis þar sem Eyja mín ætlar að baka afmælisköku og við ætlum að leikaSmile

Takk fyrir allt gamalt og gott

Afmælisbarnið kveður......Arna Kristín


Posted at 01:47 am by arnakr
Comments (4)  




Next Page



   









Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed